Official opnun á nýju síðunni minni!

header1Endilega kíkið á hana www.icelandicbeauty.com ég á enþá eftir að opna aðdáenda svæðið en það opnar vonandi á næstu vikum. Nú er hægt að kaupa sér t.d kaffibolla með mynd af mér og einnig skemmtilega boli Wink hehe..

látið mig svo vita hvað ykkur finnst!?? Kissing

Ásdís opnar aðdáendasíðu.. Visir frétt.


Sýnishorn frá síðustu myndatöku

asdis1asdis2asdis3

Hér eru nokkur sýnishorn úr myndatöku sem ég fór í fyrir lúxusfyrirtæki í brúðkaups bransanum. Ég gerði stóran samning við þetta fyrirtæki sem heitir AFRODITA og sér um skipulagningu á brúðkaupum fyrir milljónamæringa, ég verð andlit þeirra næstu 6 mánuðina. Ath að myndarnar er ekki búið að vinna fyrir auglýsingar. Myndir úr þessari töku eiga eftir að príða billboard skilti víðsvegar um Sofiu næstu mánuði. Endilega segið mér hvað ykkur finnst um þær! Smile 

Location: Operu húsið  - Ljósmyndari: Dilian Markov

 

 

 


Ísland í dag!

simamζrHvernig fannst ykkur Nærmyndin???  var þetta ekki bara svoldið krassandi g skemmtilegt! Mér fannst svo gaman að sjá allar þessar myndir á einum stað Joyful og náttúrulega heyra þetta fallega umtal frá nánustu þó að einhver partur úr minni æsku hafi aðeins farið fyrir brjóstið á þeim viðkvæmustu Wink þannig er ég bara..

 Fyrir þá sem misstu af þættinum þá er hægt að sjá hann hér!

 


Myndasería frá Bombukvöldi

VIDEO HÉR.

Val á kynþokkafyllstu konunni í Búlgaríu, það voru 50 fjölmiðlar TV og pressa sem komu að valinu. Ég vann næst stærsta flokkinn sem var kynþokkafyllsta ljóshærða konan. Þessi blondína sem er með mér þarna er fræg chalga-söngkona og vann overall verðlaun kvöldsins þar sem hún var tilnefnd í fleiri flokkum en ég eða kynþokkafylsta söngkonan líka (vest ég kann ekki að syngja GetLost). Þetta kvöld var tilstyrktar brjóstakrabbameini svo ég tileinka þennan þokkafulla titill henni móður minni sem er einmitt í baráttu við brjóstakrabbamein Joyful

Btw: Í þessum hluta heimsins eru blondíur í guðatölu þó það sé kannski ekki beint áhugavert fyrir okkur íslendingana - hér er þetta talinn stærsti heiðurinn að vera kosin "The sexiest blond of the year"!! Wink bara einfalt - Blonds do it better! hehe..

sexynight 011sexynight 004sexynight 006


Dagbók Dísu skvísu..

Þetta er búið að vera mjög latur dagur, henti krökkunum í barnapössun og skellti mér í SPA-ið í WorldClass. Fór aðeins út í gærkveldi og er frekar tussuleg í dag af þeim völdum. Ætla að eyða restinni í leti líka, þarf að spreyja á mig brúnku og gera mig fína fyrir myndatöku sem er áætlað að standi yfir allan daginn á morgun. Þetta er fyrir 5 stór auglýsingaskilti ásamt slatta af heilsíðum í hinum og þessum blöðum næstu 6 mánuði. Eftir myndatökuna fer ég svo heim, skelli mér í eitthvað glamour-dress og fer beint á verðlaunaafhendinguna "Kvöld kynþokkans" þar sem ég er nominated í einhverjum flokk eða flokkum. Þetta er eitt stærsta fjölmiðlakvöld ársins þar sem 50 fjölmiðlar sjónvarp og pressa kjósa flottustu stjörnurnar (spennandi) Ég læt ykkur vita með þessi úrslit á þriðjudag eða þegar ég kem heim á mánudagsnótt!

Vil vekja athygli á því að Stöð 2 er að gera nærmynd um mig sem verður sýnt á þriðjudag í íslandi í dag. Ekkert smá fallega gert af þeim! Joyful Það eru algjör forréttindi að fá svona þátt gerðan um sig sem maður getur átt í ellinni.

InLoveTHANKS guys..


Smá listaverk eftir mig

face2xx copyNú eru einungis nokkrir dagar í að ég opni nýju síðuna mína sem mun vera sú fullkomnasta á Íslandi! Cool  Það verður allt tilkynnt hérna síðar svo fylgist vel með.

Hægt að horfa á mig í beinni ONLINE í kvöld

slaviFyrir þá sem vilja þá er hægt að sjá The Azis show í kvöld þegar þátturinn er sýndur í Búlgaríu. Þetta er kvöldþáttur í Jay Leno stíl, annar stærsti í Búlgaríu á eftir Slavi show sem ég fór í seinast.

logo-tv2vefsíðan er www.iptv.bg þú þarft að skrá þig sem notanda á auðveldan hátt og velur svo TV2 og ættir að finna Azis show einhverstaðar. Ath að það þarf að hafa góða tölvu til að geta horft á svona útsendingu án vandræða. Hægt er að breyta síðunni yfir á ensku niðri í vinstra horni.

Ég held að þátturinn byrji kl 20.00 á ísl tíma.

Hér er hægt að sjá The Azis show!

Brot úr The Slavi show

 

 


Ásdís Rán Leysir vandann í Mónitor

A0023112litilApríl blað Mónitors er í vinnslu núna og verður minn víðfrægi dálkur þar í boði fyrir lesendur blaðsins, ég er að taka á móti spurningum fyrir dálkinn svo endilega sendið mér eitthvað skemmtilegt á asdisran@monitor.is

ATH þetta http://www.monitor.is/frettir/2009-03-17/Asdis_Ran_snyr_aftur_i_Monitor

Ný síða Mónitor er nú kominn í loftið endilega kíkið á hana!


World Class Búlgaria

011007014019024

Hér er smá myndasería úr WorldClass fitness og SPA, ég er semsagt andlit  stöðvarinnar hér í Búlgaríu og exclusive þjálfari. Þetta er það skemmtilegasta sem ég geri inn á milli anna daglega, ég hef alltaf verið mikið teng við líkamsrækt, keppt í fitness og kenndi hinar ýmsu tíma hér í denn og þar á meðal kickbox svo mér líður best þegar ég er hálf gróinn við einhverja líkamsræktarstöð sem mér líður vel í Smile mér finnst ekkert hræðilegra en þetta tímabil sem ég er búin að ganga í gegnum síðustu árin - vera ólétt í næstum ár, reyna að koma sér í form aftur í ár, verða svo ólétt aftur og koma sér í form aftur! Þetta er bara sjúklega erfitt!(sérstaklega þegar maður þyngist að meðaltali um 20 kilo á meðgöngu.)

En ég er hörð af mér og læt lítið stoppa mig þess vegna tekst mér þetta alltaf á endanum þó að ég sé með hæga brennslu og neyta mér sjaldnast um góðan mat eða gott vín Wink hehe.... Ég stefni nú á að koma öðrum mömmum í skvísuform ásamt fleirum og það verður jafnvel líka hægt að fá hjá mér fjarþjálfun í framtíðinni.Cool

P.s. ef það er einhver að furða sig á augnskugganum þá var ég að koma beint úr tökum þarna Wink

Heart


Meira áhugavert fyrir heilsu-og fitness fríkur!

Vaxtarvorur.is hefur opnað community fyrir þá sem hafa áhuga á heilsu og líkamsrækt, þetta virkar svipað og myspace/facebook og allt það nema þarna geta þeir sem hafa þetta áhugasvið tengt sig saman, rætt um vaxtarækt, fitness eða heilsu og fengið afslátt af nýjustu vörunum!

Einnig sniðugt kerfi fyrir einkaþjálfara og þá sem eru að þjálfa hópa því þarna geta þeir haft hópana sína, tengt þá saman og deilt upplýsingum á hópinn a auðveldan hátt. Svo um að gera fyrir þá sem eru í fitness-og vaxtarækt að búa sér til prófíl og dæla inn kroppamyndum Wink

Til hamingju með þetta strákar! www.vaxtarvorur.com

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Ásdís Rán Gunnarsdóttir

Höfundur

Ásdís Rán
Ásdís Rán
//The IceQueen
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • Cover main
  • Inside cover
  • Asdis
  • ...all_1079786
  • ...all_1079785

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.5.): 5
  • Sl. sólarhring: 65
  • Sl. viku: 231
  • Frá upphafi: 2043077

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 191
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband