Helma Art

asdis ran ArnoldStudio07xl

Hér er fallegt listaverk sem Helma Þorsteinsdóttir málaði af mér eftir sérpöntun og sendi mér hérna út til Búlgaríu. Ótrúlega hæfileikarík ung listakona. Það er hægt að finna hana á facebook. 

 

 

 

 

 


Event myndir

4582_1158094947115_1069997560_466667_2043975_nOkMag 001Á leiðinni á OK Magazine awards, þetta er bara svona djók Oscars verðlaunaafhending fyrir stjörnurnar en aðalega bara skemmtun.

Þarna til vinstri er ég, Garðar og Polia ritstjtóri OK Mag.

Brjálað hár í gangi hjá mér Grin hárgreiðslumaðurinn minn vildi breita aðeins til...

 

 

 

 

OkMag 016 OkMag 018

Hér er Garðar með vinafólki okkar Rony og Diana. Flokkurinn sem ég var tilnefnd í "sex in the city" þeir hétu allir eftir biomyndum eða þáttum.

 

 

OkMag 007OkMag 019þarna er ég og kallinn að pósa, kona í gula er þekktur þáttarstjórnandi og til hliðar er sviðið þar sem verðlauna afhendingin fór fram..


ja hérna...

Það voru ekki allar konurnar að fíla megrunarkúrinn minn svo ég tók upplýsingarnar út, það er með eindæmum hvað fólk þarf alltaf að skipta sér af svona í staðinn fyrir að bara sætta sig við og virða það hljóðlaust sem aðrir kjósa að velja sér og hafa áhuga á. Þessi kúr er löglegur og þróaður af hámenntuðum læknum í Evrópu og hefur hjálpað hundruðum að grenna sig og ef þið hafið ekki áhuga á þessu og kjósið aðrar leiðir þá er það bara allt í lagi ég geri það líka og æfi líkamsrækt af kappi með en neita því ekki að ég hef gaman af því að taka svona kúra fyrir sérstök tilefni!! Svona kúr væri hins vegar ekki seldur til unglinga, heldur er hann ætlaður þeim eldri sem þurfa á því að halda. Btw. þá var ég að setja þessar upplýsingar inn til að aðstoða konur sem senda mér email daglega með spurningar um svona diet og því miður er ekki hægt að gera öllum ykkur til geðs en staðreyndin er sú að þetta eru vinsælustu kúrarnir í dag - en flestar bara gefa það bara ekki upp eins og ég Whistling

Update af því helsta..

phoneÉg er ennþá hérna og á fullu eins og vanalega. Til hamingju með góða veðrið vest að ég rétt missti af því þarna á klakanum en fékk það í staðin hér í Bg og meira til Cool Það er samt ekki hægt að bera það saman við ísland því að stemmingin verður svo gífurlegt þegar loksins blessuð sólin lætur sjá sig. Við erum búnar að vera hérna einar ég og Viktoría í næstum 2 vikur, Garðar og Hektor eru ennþá á íslandi en koma til okkar innan skamms. Skrítið hvað það er auðvelt eitthvað að vera bara með 1 barn svo þegar það eru komin 2 þá eru það eins og 10! Tounge En við söknum þeirra nú samt svakalega.

Það sem er svona næst á döfinni hjá mér er: Á morgun er ég stjörnu gestur í morgun-þættinum Na Kafe á Nova TV, er að byrja með minn eigin beauty dálk í næsta OK Magazine, ég mun príða næstu forsíðu MAXIMS magazine sem verður alveg svakalega flott! og svo fer ég til Danmörk á mánudag varðandi stórt world wide model verkefni sem ég er rosa spennt fyrir - meira um það seinna Joyful

Varðandi Maxims blaðið þá verður þetta forsíða plús 10-12 bls myndaþáttur og ég verð með á milli handanna um 30 blöð með áritun sem ég sendi til íslands sem mínir stærstu aðdáendur geta keypt fyrir um 5000kr með sendingarkostnað. Betra að láta heyra í sér fyrr en seinna því það var allt vitlaust síðast þegar MAX kom út og færri fengu en vildu! Þess má geta að þessi forsíða og myndaþáttur í Maxims er al-íslenskt efni og 3 af bestu artistum landsins þar að baki: Arnold ljósmyndari, Skjöldur hár og Heiðdís Rós með makeup.

Heart


Afrodita "Billboards"

Hér eru nokkrar myndir sem ég fékk sendar með auglýsingarherferð sem er í gangi með mér í Bg Pinch Þetta er svona Eðal "wedding planner" skrifstofa.

Per.10-poz.24aPer.10-poz.16aPer.10-poz.31bPer.10-poz.Sf_718


Diet Morgun-Shake Ásdísar ;)

Blueberries2Uppskrift að hressandi morgun shake: 

1/4 bolli undanrenna
1/4 bolli fitusnauð vanillu jógúrt/skyr
1/4 bolli mjúkt tofu
handfylli af berjum að eigin vali.

Blandað saman í mixer og þú færð fullkomna samsetningu af kolvetnum og próteinum. Einnig er hægt að nota kotasælu í stað Tófu..

 

Extrem Diet og Detox

JuicingVegetables2Varðandi öll emailin sem ég er að fá með fyrirspurnum um hvort ég geti ráðlagt hvernig er hægt að missa 3-5 kiló á mánuði þá verð ég að afsaka það að ég hef ekki náð að svara ykkur öllum skvísunum vegna anna! Hinsvegar til að leysa þennan vanda þá er ég einmitt búin að þróa My World á síðunni minni sem þið finnið þar undir "FanSpace" þetta svæði er ég að vinna í á fullu og stefni á að opna á föst/Laug! Mér langar að biðja ykkur um að nálgast mig þar varðandi allar þessar exclusive upplýsingar og beauty secrets, það er bæði hægt að lesa greinar á þessu svæði og tengja sig beint við mig og bara spyrja um heima og geyma Wink  ég fæ stundum 10-20 email á viku með svona spurningum svo ég bara næ ómögulega að svara þessu öllu! En Já ég veit hvernig þið getið losnað við þessi kíló á fljótan hátt svo ég vonast til þess að þið fyrirgefið mér og ég fái að heyra í ykkur aftur í MY World Heart

Eurovision! Congratz Iceland!!

ldeMikið ofboðslega var hún Jóhanna svakalega flott þarna á sviðinu! ég fékk bara gæsahúð W00t 

En gaman að segja frá því að þessi hæfileikaríka unga stúlka var hálfgerður heimalingur hjá mér lengi þegar hún var smá stelpa. Mín fyrsta minning af henni er fyrir c.a 10 árum þar bjó hún á móti mér í Lindarbergi í Hafnarfirði. Eitt kvöldið var götugrill veisla í stóru hvítu tjaldi í götunni og Hafnfirðingarnir náttúrulega mættir með öl og gítar í fullu fjöri þá kemur þessi litla hnáta inn í tjaldið (hún hefur verið svona 6-8 ára er ekki alveg með árin á hreinu) og ákveður að taka lagið með okkur þar sem henni leist ekki alveg á blikuna en ég man eftir því að það datt af öllum andlitið! hún söng og söng eins og stórstjarna með allt á hreinu! Þetta var alveg svakalegt Smile eftir það þá var hún daglegur gestur hjá mér, hjálpaði mér að passa litla strákinn minn og spjallaði við mig um heima og geyma. En allavega ég gleymi henni aldrei og ég var alltaf viss um að hún yrði súper stjarna in the end Wink Ótrúlega hæfileikarík falleg ung stúlka sem á þetta allt skilið.

Annað mál er að ég er dyggur stuðningsmaður náttúrulega búin að vinna að því að fá Búlgaríu til að kjósa stúlkuna svo ég nelgdi nokkur stig og stefni á enn fleiri í næstu kosningu! nokkuð viss um að þeir kjósi hana allir hérna Wink GO Jóhanna!

Heart 

 


The sexiest night of the year!

Já það er ekki hægt að segja að þessar skvísur kunni ekki að klæða sig! Wink mér tókst að grafa upp nokkrar glæsilegar myndir úr Ránar teitinu mikla. Ég verð að viðurkenna að ég sé alveg glitta í mig þarna í stúlkunum svo það er greinilegt að þær hafi verið í rétta gírnum, kannski ekki alveg jafn góðar að pósa en samt as good as it can be Cool hehe.. Alveg Magnaðar!

n652706582_2321031_7451569n593584464_2618160_3790070n593584464_2618154_3726602n593584464_2618673_4132389

 

 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Ásdís Rán Gunnarsdóttir

Höfundur

Ásdís Rán
Ásdís Rán
//The IceQueen
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • Cover main
  • Inside cover
  • Asdis
  • ...all_1079786
  • ...all_1079785

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 4
  • Sl. sólarhring: 8
  • Sl. viku: 44
  • Frá upphafi: 2042089

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 36
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband